Sumarleikar Akraness 2020

Að loknum Sumarleikum Akraness.

Venjulega er sundmótið okkar, Akranesleikar haldið í endaðan maí eða byrjun júní, en vegna Covid var mótið aðeins með breyttu sniði og var það nefnt að þessu sinni Sumarleikar Akranes.  Mótið gekk vel fyrir sig, 353 sundmenn frá 15 félögum tóku þátt og mörg flott sund og bætingar yfir helgina. Margir náðu lágmörkum á Aldursflokkameistaramótið ( AMI ) og Íslandsmeistaramótið.

Myndsyrpu frá mótinu er að finna á www.iasund.is undir Sumarleikar Akraness 2020

Til að þetta geti allt gengið upp þá þarf að hjálpast að og við höfum svo sannarlega séð hversu öflugt fólk Sundfélag Akranes er með í kring um sig.Foreldrar og venslamenn skiptust á að standa vaktina alla helgina, hvort sem það var dómgæsla, riðlastjórn, kaffisala, skólagæsla, uppvask eða annað.
Sundfólkið okkar sá um að manna sjoppuna alla helgina og skiptust á að standa vaktina þá hluta sem þau voru ekki að synda og einnig komu krakkar sem hætt eru að synda og aðstoðuðu.
Það er mikið verk að setja upp svona sundmót og mörg verk á bakkanum sem þarf að vinna. Þar nutum við góðs af sundmönnunum okkar sem unnu með okkur á fimmtudagskvöldið við að setja upp öll tól og tæki sem þurfti ásamt foreldrum.

Á svona sundmóti þarf her manns til að starfa en dómarateymið í hverjum hluta telur um 18 manns. Við erum heppin með það ríkir góður andi á Akranesleikum/Sumarleikum og fáum við oftar en ekki fólk alls staðar að til að koma og vera með okkur og foreldrar í félaginu okkar ásamt foreldrum fyrrum sundmanna eru algjörlega ómissandi við laugina. Þeir telja ekki eftir sér að koma og dæma eða annast tímavörslu.

Síðast en alls ekki síst er það starfsfólk Jaðarsbakkasundlaugar sem við treystum á það hefur verið okkur mjög hjálplegt og oft er best að leita til þess með lausnir á vandasömum málum. Þetta fólk á mikinn þátt í því að helgin gekk svona vel og þökkum við því fyrir það.

Vonum að enginn sé að gleymast en ekki er hægt að ljúka þessum pistli án þess að segja hversu stolt við erum af öllum sundmönnunum okkar sem kepptu um helgina eða voru með okkur. Þeir stóðu sig frábærlega vel og voru okkur svo sannarlega til sóma, margir að synda sitt fyrsta alvöru sundmót.

Þökk fyrir helgina,
stjórn og þjálfarar SA