Um nýliðna helgi fóru Akranesleikarnir í sundi fram í Jaðarsbakkalaug. Metþátttaka var á mótinu í ár en alls tóku 386 krakkar þátt frá 12 félögum. Það var því líf og fjör í lauginni um helgina enda stungu sundkrakkarnir sér alls 1759 sinnum til sunds.
Í Grundaskóla gistu 325 sundmenn, þjálfarar og fararstjórar og í skólanum borðuðu einnig sundmenn og starfsmenn mótsins.
Sundfélag Hafnarfjarðar var stigahæsta félagið á mótinu en Sunddeild Ármanns vann brosbikarinn. Auk þess unnu margir góða sigra á mótinu, bættu persónuleg met eða tóku fyrstu sundtökin sín á alvöru sundmóti.
Til að allt gangi upp á móti sem þessu þurfa margir að leggjast á eitt og kom í ljós að aðstandendur Sundfélags Akraness er öflugur hópur. Foreldrar sundmanna ásamt velunnurum félagsins stóðu vaktina alla helgina við hin ýmsu störf eins og dómgæslu, riðlastjórn, matarskömtun, veitingasölu, bakstur, uppvask og ýmislegt fleira.
Dómarateymi hvers mótshluta telur 18 manns. Á Akranesleikum ríkir ávallt góður andi og sunddómurum viðsvegar að af landinu þykir eftirsóknarvert að taka þátt með okkur á Skaganum og fyrir það erum við hjá Sundfélagi Akraness afar þakklát.
Starfsfólk Jaðarsbakkalaugar stóð við bakið á okkur í ár eins og hingað til. Það er ekki síst þeim að þakka að mótshelgin gekk eins vel og raun ber vitni og berum við þeim miklar þakkir fyrir.
Ekki má gleyma sundkrökkunum okkar sem kepptu um helgina og störfuðu við mótið. Við erum afar stolt af þessum krökkum og eru þau félaginu sínu til mikils sóma.
Með kærri þökk fyrir helgina
Stjórn og þjálfara Sundfélags Akraness.