Haustmót IA

Föstudaginn síðastliðinn fór fram í Jaðarsbakkalaug Haustmót ÍA fyrir yngri iðkendur, 7–12 ára.Alls tóku 36 sundmenn þátt, þar af 30 frá Sundfélagi Akraness og 6 frá Skallagrími.

Fyrir marga krakkana var þetta þeirra fyrsta sundmót. Þau stóðu sig afar vel, sýndu mikinn dugnað og náðu góðum bætingum. 

Veðrið var sem betur fer ágætt miðað við veðrið dagana á undan, annars hefði ekki verið hægt að halda mótið.Að móti loknu fengu allir keppendur þátttökuverðlaun. 

Við þökkum frábærum dómurum og sjálfboðaliðum kærlega fyrir þeirra mikilvæga framlag og aðstoð við framkvæmd mótsins. 

Við hlökkum til að fylgjast áfram með þessum hressu sundmönnum og sjá þau spreyta sig á næstu mótum.