2. sæti í Bikarkeppni SSÍ
Um helgina fór Bikarkeppni SSÍ fram í Vatnaveröld í Reykjanesbæ. ÍA var með ungt stelpulið í 2. deild keppninnar og stóðu stelpurnar sig frábærlega og unnu til silfurverðlauna.
Stelpurnar okkar stóðu sig með mikilli prýði og bættu sig verulega í mörgum greinum. Þær sigruðu meðal annars í 4×50 m og 4×100 m skriðsundsboðssundi og voru ekki langt frá fyrsta sætinu í heildarkeppninni.
Keppendur ÍA voru Sunna Dís Skarpheiðinsdóttir, Viktoria Emilia Orlita, Sunna Dögg Michaelsdóttir, Ólöf Oddný Jansen, Karen Anna Orlita og Rúna Björk Ingvarsdóttir.
Bikarkeppnin hefur tekið nokkrum breytingum og eru nú aðeins þrjú lið í 1. deild. ÍA tefldi því fram liði í 2. deild að þessu sinni.
Við óskum stelpunum innilega til hamingju með frábæran árangur og silfurverðlaunin!



