DÓMARANÁMSKEIÐ 23. september.

Nú er tækifæri að komast í hóp dómara og hafa þannig besta útsýnið yfir sundlaugina.

Við þurfum alltaf fleiri dómara til að geta haldið öflug sundmót á Akranesi fyrir sundfólkið okkar, bæði í Bjarnalaug og á Jaðarsbökkum.

Við hvetjum alla til að skrá sig – núverandi foreldra, fyrrverandi sundmenn og alla aðra sem hafa áhuga á að taka þátt í starfi sundhreyfingarinnar. Engin fyrri reynsla er nauðsynleg.