Íslandsmeistaramót aldursflokka 2026
Helgina 19.–21. júní fór fram Íslandsmeistaramót aldursflokka í sundi í Reykjanesbæ. Mótið er ætlað sundmönnum 15 ára og yngri og tóku um 210 keppendur víðs vegar af landinu þátt.
Til að öðlast keppnisrétt þurftu sundmenn að ná fyrirfram skilgreindum lágmarkstímum.
Sundfélag Akraness sendi níu keppendur á mótið sem stóðu sig öll afar vel. Félagið hafnaði í 6. sæti í stigakeppni félaga. Miklar bætingar sáust hjá hópnum um helgina og fjölmörg markmið náðust.
Á mótinu er keppt í flokkunum 11 ára og yngri, 12–13 ára og 14–15 ára. Viðurkenningar eru veittar fyrir sex efstu sæti í hverri grein.
Karen Anna Orlita varð í 4. sæti í bæði 100 m og 200 m skriðsundi í flokki 14–15 ára og bætti sig í fleiri greinum á mótinu.
Freyja Lilja Niewczas vann til gullverðlauna í 50 m baksundi í flokki 11 ára og yngri. Hún varð einnig í 4. sæti í bæði 50 m flugsundi og 50 m skriðsundi.
Boðsundssveit stúlkna 11 ára og yngri hafnaði í 5. sæti í 4×50 m skriðsundi. Allar stúlkurnar syntu hraðar en bestu tíma sína fyrir mótið. Sveitina skipuðu:
Freyja Lilja Niewczas
Sigríður Sóley Eiríksdóttir
Anaya Elisabeth Bain
Anita Fönn Gísladóttir
Sama sveit hafnaði í 6. sæti í 4×50 m fjórsundi. Þar skipuðu sveitina:
Freyja Lilja Niewczas
Anaya Elisabeth Bain
Anita Fönn Gísladóttir
Helga Dís Reynisdóttir
Í 4×50 m blönduðu fjórsundi í flokki 12–13 ára hafnaði sveit Sundfélags Akraness í 9. sæti. Athygli vekur að allir keppendur sveitarinnar voru á yngsta ári flokksins. Sveitina skipuðu:
Rúna Björk Ingvarsdóttir
Gunnar Logi Guðmundsson
Freyja Lilja Niewczas
Sigmar Orri Halldórsson
Keppendur á mótinu frá Sundfélag Akraness:
Karen Anna Orlita, Runa Björk Ingvarsdóttir, Gunnar Logi Guðmundsson, Sigmar Orri Halldórsson, Anita Fönn Gisladóttir, Freyja Lilja Niewczas, Sigriður Sóley Einarsdóttir, Anaya Elisabet Bain, Helga Dís Reynisdóttir.
Frábær helgi er að baki í Reykjanesbæ með góðri stemningu, glæsilegri umgjörð og flottum árangri sundfólksins okkar.
Við þökkum ÍRB og öllum þeim sem komu að framkvæmd mótsins fyrir frábært starf, auk þess sem við sendum foreldrum og aðstandendum kærar þakkir fyrir stuðninginn alla helgina.




















