Sex Akurnesingar fengu silfurmerki Sundsambandsins á afmælishátíðinni
Sundsamband Íslands hélt upp á 75 ára afmæli sambandsins 12. febrúar í Þróttaraheimilinu í Laugardalnum.
Sambandið fagnaði með samstarfsaðilum sundhreyfingarinnar í gegnum árin og var margt um manninn og mikil gleði við völd. Sambandið hefur í 75 ár unnið að uppbyggingu sundíþróttarinnar á Íslandi og var afmælið því frábært tækifæri til að hittast, rifja upp sögur og líta fram á veginn saman. Boðið var uppá fjölbreytta og skemmtilega dagskrá þar sem m.a. Willum Þór Þórsson forseti ÍSÍ og Björn Sigurðsson formaður SSÍ fluttu afmælisávarp.
Hátíðin var sérstaklega tileinkuð sjálfboðaliðum sem í gegnum árin hafa unnið ómetanlegt starf í þágu sundhreyfingarinnar. Heiðursviðurkenningar voru veittar sjálfboðaliðum sem hafa af alúð og metnaði unnið í þágu sundsins. Sex Akurnesingar fengu silfurmerki Sundsambandsins á afmælishátíðinni en þau eru:
Ólafur Páll Gunnarsson
Ingunn Ríkharðsdóttir
Berglind Valdimarsdóttir
Þórdís Guðmundsdóttir
Bjarney Guðbjörnsdóttir
Leifur Guðni Grétarsson