Aðalfundur Sundfélags Akraness fór fram 4. mars

Aðalfundur Sundfélags Akraness fór fram 4. mars sl. Fundurinn var vel sóttur og fóru fram hefðbundin aðalfundarstörf. Formaður félagsins, Valdimar Ingi Brynjarsson flutti skýrslu stjórnar. Þar fór hann m.a. yfir þau sundmót sem sundiðkendur hafa sótt, æfingabúðir sem farið var í og almennt mjög gott gengi sundiðkenda. Iðkendur félagsins voru 455 á árinu 2025 og fjölgaði þeim lítillega frá fyrra ári. Einar Margeir Ágústsson sundmaður var valinn íþróttamanneskja ársins fyrir árið 2025, þriðja árið í röð.

Ársreikningar félagsins voru lagðir fram af Maríönnu Pálsdóttur gjaldkera og þeir samþykktir. Niðurstaða fyrir rekstrarárið 2025 var neikvæð uppá 2.2 milljónir og má rekja þann halla til kaupa á nauðsynlegum tæknibúnaði til mótahalds en ekki fékkst styrkur fyrir búnaðinum eins og vonir stóðu til. Þrátt fyrir þetta er staða félagsins sterk með eigið fé um 14 milljónir króna.

Á fundinum var sunddómurum sem sinnt hafa dómgæslu á nýliðnu ári færður sérstakur þakklætisvottur fyrir sitt framlag til dómgæslu á sundmótum. Sunddómarar eins og aðrir sjálfboðaliðar eru sundfélaginu afar dýrmætir og var sérstaklega hvatt til þátttöku í sjálfboðaliðastarfi.

Stjórn Sundfélags Akraness var endurkjörin án breytinga. Stjórnina skipa: Valdimar Ingi Brynjarsson formaður, Guðrún Guðbjarnadóttir varaformaður, Þórdís Guðmundsdóttir ritari, Maríanna Pálsdóttir gjaldkeri, ásamt Ágústi Júlíussyni, Emiliu Orlita og Guðmundi Júlíussyni meðstjórnendum.

Björn Sigurðsson formaður Sundsambands Íslands ávarpaði fundinn og kom fram í máli hans að Sundfélag Akraness væri til fyrirmyndar að allri umgjörð og innra starfi. Hann var harðorður í garð bæjaryfirvalda og sagði að aðstaða til sundiðkunar og þjálfunar væri óboðleg hér á Akranesi.

Líf Lárusdóttir formaður bæjarráðs tók undir með Birni að staðan væri ekki góð hvað sundaðstöðu varðaði.

Formaður íþróttabandalags Akraness, Gyða Bergþórsdóttir þakkaði félaginu fyrir gott samstarf og óskaði því til hamingju með árangursríkt starf á árinu 2025.

Fundargestir gæddu sér á góðum veitingum í lok fundar og áttu gott spjall um íþrótta og æskulýðsmál á Akranesi.

Árskýrsla S.A 2025
Ársreikningur S.A 2025
Rekstraáætlun SA 2026