Sunna Arnfinnsdóttir vann til fjögurra silfurverðlauna á ÍM50

Sunna Arnfinnsdóttir vann til fjögurra silfurverðlauna á ÍM50 Íslandsmeistaramótið í 50 metra laug (ÍM50) fór fram um síðustu helgi í Ásvallalaug í Hafnarfirði.

Alls tóku 182 keppendur þátt frá 9 félögum. Þrátt fyrir að keppendur úr félaginu hafi verið færri en venjulega var árangurinn góður og stóðu keppendur sig vel.

Sunna var í fremstu röð í sínum greinum og vann til fjögurra silfurverðlauna. Hún varð í öðru sæti í 50 metra baksundi, 100 metra baksundi, 400 metra fjórsundi og 1500 metra skriðsundi.
Auk þess náði hún góðum árangri í fleiri greinum, þar sem hún hafnaði í fimmta sæti í 200 metra fjórsundi og í 11. sæti í 50 metra skriðsundi.
Karen Anna Orlita bætti sig í báðum sínum greinum á mótinu. Hún hafnaði í 12. sæti í 400 metra skriðsundi og í 10. sæti í 50 metra skriðsundi.

Viktoría Emilia Orlita synti einnig vel og var nálægt sínum besta tíma í 50 metra skriðsundi, þar sem hún endaði í níunda sæti.