Góð byrjun á tímabilinu á Reykjavik International Games

Miklar bætingar voru hjá sundfólkinu frá Akranesi.
Eymar Ágúst Eymarsson bætti sig í öllum þremur greinum sem hann tók þátt í.
Sunna Dís Skarphéðinsdóttir bætti sig í tveimur greinum og synti sitt besta sund í þeirri þriðju.
Karen Anna Orlita bætti sig í fimm af sex sundum og Viktoria Emilia Orlita bætti sig í tveimur sundum.

Sunna Arnfinnsdóttir synti sig í úrslit í þremur greinum og hennar besti árangur var fjórða sæti í 400 m skriðsundi, 5. Sæti í 100 flugsundi og sjöunda sæti í 50 m baksundi.
Karen Anna og Viktoria syntu með Sunnu A. í B-úrslitum í 50 m skriðsundi, þar sem Sunna varð nr. 1 og Viktoria nr. 3.

Mjög góð byrjun á árinu svona snemma eftir jólafrí.

Gaman er einnig að segja frá því að ÍA átti marga sjálfboðaliða á mótinu, bæði sem dómarar, þular, körfuberar og við aðstoð við verðlaunaafhendingar. Við erum afar stolt af sundfólkinu okkar og sjálfboðaliðunum.

Í lok móts var skrifað undir samninga um einstaklingsstyrki SSÍ, sem sambandið fékk úthlutað úr Afrekssjóði ÍSÍ. Einar Margeir Ágústsson var einn af fimm sundmönnum sem hlutu styrkinn á þessu ári.