Sumarmeistaramót SSÍ

Helgina 26-28. júni fór fram Sumarmeistaramót SSÍ í Hafnarfirði sem jafnframt markaði lok sundtímabilsins. Sundfélag Akraness átti afar gott mót og hafnaði í 3. sæti í stigakeppni 16 ára og eldri, glæsilegum árangri sem félagið er afar stolt af.

Verðlaunahafar ÍA
16 ára og eldri
🥇 Gull
Einar Margeir Ágústsson – 200 m bringusund

🥈 Silfur
Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir – 50 m baksund og 50 m skriðsund
Einar Margeir Ágústsson – 50 m bringusund og 100 m bringusund

🥉 Brons
Enrique Snær Llorens – 100 m flugsund
Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir – 100m skriðsund

Keppendur Sundfélags Akraness á mótinu voru:

Enrique Snær Llorens, Einar Margeir Ágústsson, Eymar Ágúst Eymarsson, Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir, Sunna Arnfinnsdóttir, Sunna Dís Skarpheðinsdóttir og Ólöf Oddný Jansen.

Við óskum öllu sundfólki innilega til hamingju með glæsilegan árangur og erum stolt af frábærri framistöðu á síðasta móti tímabilsins