Karen Anna keppti með framtíðarhópi Sundsambands Íslands gegn Færeyjum.


Karen Anna Orlita keppti um helgina með framtíðarhópi Sundsambands Íslands á móti Færeyjum. Keppnin er ætluð 13–15 ára sundfólki og er þetta annað árið sem hún fer fram – og jafnframt í annað sinn sem Karen Anna tekur þátt.

Í ár fór mótið fram í Keflavík og ríkti þar frábær stemning. Áherslan var ekki eingöngu lögð á keppnina sjálfa heldur einnig á að efla vináttu og tengsl milli unga sundfólksins frá löndunum tveimur. Sameiginlegar æfingar voru á föstudegi og sunnudegi, en keppt var á laugardeginum. Að keppni lokinni fór hópurinn saman í hópeflisferð í Bláa lónið.

Karen Anna stóð sig mjög vel á mótinu. Hún bætti sinn besta tíma í 100 m skriðsundi, synti á 1:02,01 og hafnaði í 2. sæti. Hún keppti einnig í 200 m skriðsundi og 100 m flugsundi, þar sem hún var nálægt sínum bestu tímum og hafnaði í 3. sæti í báðum greinum.
Keppnisdagskráin var þétt og auk einstaklingsgreinanna synti Karen Anna þrisvar sinnum í boðsundi með íslenska liðinu.

Ísland hafði betur gegn Færeyjum í stigakeppninni, en stærsti sigur helgarinnar var án efa vináttan og tengslin sem mynduðust á milli sundfólks landanna tveggja.