Bodyfuel-mót Ægis

Bodyfuel-mót Ægis fór fram um síðustu helgi og átti Sundfélag Akraness þar glæsilega fulltrúa.

Alls tóku 18 sundmenn frá SA þátt í mótinu og stóðu sig með mikilli prýði. Góð stemning ríkti á mótinu, margir náðu persónulegum bætingum og okkar unga fólk sýndi flotta frammistöðu í lauginni.

Rúna Björk, Eymar Ágúst og Ólöf Oddný komust öll á verðlaunapall um helgina.

Við erum ótrúlega stolt af öllum okkar sundmönnum og hlökkum til næsta móts. Það verður gaman að fylgjast með þessum flotta hópi halda áfram að vaxa og dafna í sundinu.

Myndir: Sundfélagið Ægir / Sundfélag Akraness