Skagamenn í fimmta sæti í Bikarkeppni SSÍ
Um liðna helgi var Bikarmót Sundsambands Íslands haldin í Reykjanesbæ. Margir af sterkustu sundmönnum Íslands syntu á mótinu.
Sundfélag Akraness sendi bæði kvenna- og karlalið og var gengi þeirra framar vonum en bæði liðin urðu í fimmta sæti. Hvað stigafjölda varðar er árangurinn á mótinu í ár sá besti síðastliðin átta ár.
Margir sundmennirnir bættu tíma sína eða syntu á sínum tímum sem er mjög gott þegar keppnistímabilið er rétt að hefjast. Hæst bar þó að Ágúst Júlíusson, Íþróttamaður Akraness, náði lágmarki í 100m flugsundi til að komast á Norðurlandameistaramótið í sundi í 25m laug en það fer fram í Kolding í Danmörku í desember næstkomandi.