Reykjavík international – RIG

Einar Margeir í sínu besta formi með annan besta tíma íslandssögunnar og B lágmark á HM50

Reykjavík international – RIG- fór fram um helgina, mótið var mjög sterkt með yfir 300 sundmenn þar af yfir 100 erlendir keppendur.

Óhætt er að segja að keppnistímabilið 2025 hafi byrjað vel hjá okkar fólki. Við vorum með 8 keppendur þetta árið og niðurstaðan var mjög góð með flottar bætingar og vel  útfærð sund.

Einar Margeir Ágústsson átti frábæra helgi og varð sigurvegari í 50m – 100m og 200m bringusundi, öll þrjú sundin með Akranesmet, þar sem 100m bringusund stóð uppúr sem besta sundið hjá honum, hann synti á tímanum 1.01,23 sem er annar besti tími sem syntur hefur verið á íslandi og að sjálfsögðu Akranesmet.  Aðeins Anton Sveinn McKee hefur náð betri tíma í greininni. Hann náði einning B lágmarki á HM.

Geggjaður árangur hjá Einari.

Sunna Arnfinnsdótitr vann til brons verðlauna í bæði 100m baksundi og 200m baksundi, og sýndi fram á að formið er á góða leið, góður árangur hjá Sunnu.

Guðbjarni Sigþórsson synti til úrslita í 50m og 100m skriðsundi og í  50m skriðsundi hafnaði hann í fjórða sæti og næst hraðasta sundið af Íslensku keppendunum. Góða tímar í byrjun árs og  lofar mjög góðu fyrir framhaldið.

Kajus Jatautas var einnig í góðu formi og bætti sig í öllum sínum greinum og vann gullverðlaun í 50m baksundi og 50m skriðsundi, 15 ára og yngri flokkur.  Hann vann til viðbótar eitt silfur og tvö brons yfir helgina.

Viktoria Emilia og Karen Anna Orlita syntu mjög vel og báðar bættu þær sig verulega og þá sérstaklega í 100m skriðsundi þar sem þær náðu að fylgja plani og bæta sig um rúmar 2 sekundur.

Og átti lika frábæra 200m fjórsundi og synti lika 200m skriðsundi á mjög góðan tíma.

Birna Rún Jónsdóttir átti mjög góða bætingu í 50m skriðsundi og synti mjög vel útfært sund í 200m og 400m skriðsundi.

Ingibjörg Svava Magnúsardóttir mætti lika til leiks og átti góða sprettir í 50m baksundi og 50m skriðsundi.

Við hlökkum til komandi árs með sundfólkinu okkar.