ÍA bikarmeistari í 2. deild
A bikarmeistari í 2. deild
Síðastliðinn laugardag fór Bikarmeistaramót SSÍ fram í Asvallalaug. Þar stóðu okkar krakkar sig frábærlega og unnu titilinn bikarmeistarar í 2. deild eftir mörg góð sund. Mikil stemning ríkti á mótinu og var það með skemmtilegu sniði.
Í ár voru gerðar breytingar á fyrirkomulagi bikarkeppninnar. Hingað til hafa sex lið keppt í 1. deild, en nú var fjöldinn minnkaður niður í fjögur. Af þeim sökum færðust tvö lið niður í 2. deild, þar á meðal ÍA sem hafði áður átt sæti í 1. deild.
Önnur breyting var að karla- og kvennaflokkar voru sameinaðir í liðakeppni. Var því ekki lengur keppt í sitthvorum flokkunum heldur sem ein heild.
Keppendur fyrir hönd ÍA voru:
• Ágúst Júlíusson
• Kristján Magnússon
• Guðbjarni Sigþórsson
• Eymar Ágúst Eymarsson
• Ingibjörg Svava Magnúsardóttir
• Sunna Arnfinnsdóttir
• Sunna Dís Skarpheðinsdóttir
• Viktoria Emilia Orlita
• Karen Anna Orlita
• Helga Lind Viðarsdóttir
