18 Akranesmet voru sett á árinu.

Einar Margeir Ágústsson setti Akranesmet tíu sinnum á árinu. Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir, Enrique Snær Llorens og Guðbjárni Sigþórsson settu hvert sitt met í fullorðinsflokki á árinu.
Kajus Jatautas setti fimm met í flokki 15 ára og yngri. Hann flutti til Hafnarfjarðar í apríl og keppir í dag fyrir SH.