Einar Margeir Íþróttamanneskja Akraness 2025 og Dísa Sjálfboðaliði ársins

Einar Margeir Íþróttamanneskja Akraness 2025 og Dísa Sjálfboðaliði ársins

Við áttum viðburðaríkan dag í gær þegar kjör Íþróttamanneskju Akraness 2025 fór fram.

Einar Margeir Ágústsson var kjörinn Íþróttamanneskja Akraness 2025 eftir afar gott og viðburðaríkt ár. Hann varð Íslandsmeistari, hafnaði í 8. sæti á Evrópumeistaramóti U23, var í topp tíu á World Cup , vann til gullverðlauna á Smáþjóðaleikunum og keppti einnig á Heimsmeistaramótinu í Singapore.

Þetta er þriðja árið í röð sem Einar hlýtur þessa virtu nafnbót – frábær árangur sem endurspeglar bæði mikla vinnu og stöðugan framgang.

______________________________________

Sjálfboðaliðar ársins

Í ár voru þrír sjálfboðaliðar tilnefndir fyrir ómetanlegt framlag sitt til íþróttahreyfingarinnar á Akranesi: Trausti Gylfason, Örn Arnarson, Þórdís Bjarney Guðmundsdóttir (Dísa)

Dísa hlaut nafnbótina Sjálfboðaliði ársins. Hún er gríðarlega öflug í starfi sínu fyrir okkur og sundhreyfinguna í heild. Hún sinnir fjölmörgum hlutverkum, þar á meðal sem fararstjóri, yfirdómari, bakarameistari, stjórnarmeðlimur og öllu því sem þarf hverju sinni. Framlag hennar er ómetanlegt.

Trausti Gylfason hefur starfað fyrir íþróttahreyfinguna á Akranesi síðan 1993 og gegnt ýmsum hlutverkum innan sunds, badminton og ÍA. Hann er enn virkur í íþróttalífinu og á í dag sæti í ÍSÍ.

______________________________________

Kjör Íþróttamanneskju Akraness 2025
1. Einar Margeir Ágústsson (Sund)
2. Styrmir Jónasson (Körfubolti)
3. Guðmundur Andri Björnsson (Fimleikar)

Sundfélagið er afar stolt af Einari Margeiri og óskar honum, Dísu og öllum heiðurshöfum innilega til hamingju með þessar verðskulduðu viðurkenningar.

Á myndinni eru Birna móðir Einars og Guðni Geir bróðir hans en Guðni tók við viðurkenningunni fyrir hönd Einars.