Mikil stemning á Bárumótinu í Bjarnalaug

Þann 10. mars fór fram árlegt innanfélagsmót Sundfélags Akraness, Bárumótið, í Bjarnalaug.

Alls tóku 41 krakkar á aldrinum 12 ára og yngri þátt í mótinu. Þau stóðu sig öll frábærlega og greinilegt var að miklar framfarir hafa orðið hjá þessum efnilegu sundmönnum.

Áhorfendur fjölmenntu í Bjarnalaug og óhætt er að segja að vart hefðu fleiri komist fyrir.

Allir keppendur fengu verðlaunapening fyrir þátttökuna, en stigahæsta stelpan og stigahæsti strákurinn hlutu farandbikara sem gefnir eru til minningar um Báru Daníelsdóttur.

Bárumeistarar árið 2026 eru þau Gunnar Logi Guðmundsson og Rúna Björk Ingvarsdóttir.