Gullmót KR – tvö Akranesmet

31 sundmenn frá S.A tóku þátt í Gullmóti KR sem haldið var í Laugardalslaug um helgina. Þátttakan á mótinu var mjög góð, með yfir 490 keppendur frá öllu landinu.

Sundmenn frá S.A stóðu sig gríðarlega vel og bættu sig mjög mikið yfir helginna og margir sundmenn að stíga sín fyrstu skref á svona stóru móti i 50m laug. Allir krakkar 10 ára og yngri fengu þátttökuverðlaun fyrir sína frábæru frammistöðu.

Enrique Snær Llorens heldur áfram að bæta sig og setti nýtt glæsilegt akranesmet i 200m skriðsund i fullorðnins flokki á timanum 2.01.79, gamla metið var 2.03.00 og átti Gunnar Smári Jónsbjörnsson metið síðan 2005.

Guðbjarni Sigþórsson bætti akranesmetið i drengja flokki (13-14) í 50m flugsundi á tímanum 30.42.
Gamla metið átti Hrafn Traustason á 30.54 sem var frá Gullmóti KR i 2006.

Fjórir keppendur frá SA syntu sig inn á superchallange i 50m flugsundi, það voru :
Guðbjarni sem lenti í 2. Sæti og Vikingur Geirdal sem varð í 8 sæti i 13-14 ára flokki. Báðir með glæsilegar bætingar. Ragnheiður Karen Ólafsdóttir og Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir i 15-17 ára flokki, þar sem báðar bættu sig og urðu nr. 5 og 7.

Í boðsundi vann okkar lið i 13-14 ára flokki tvisvar til Gullverðlauna i stráka flokki, með Viking Geirdal, Guðbjarna Sigþórsson, Bjarna Snæ Skarphéiðinsson og Mateuz Kuptel.

Stelpurnar i 13-14 ára með Írisi Örnu Ingvarsdóttur, Auði Mariu Lárusdóttur, Kareni Káradóttur og Aldísi Theu Daníelsdóttur Glad urðu í 3 sæti í báðum sundunum.

Stelpurnar 15 ára og eldri unnu til tveggja bronsverlauna,en sveitin var skipuð þeim Láru Jakobinu Ringsted, Guðbjörgu Bjartey Guðmundsdóttur, Ragnheiði Karen Ólafsdóttur og Ingibjörgu Svövu Magnusardóttur.