Á morgun föstudag hefst íslandsmeistaramótið í 50m laug
Nú á föstudag hefst íslandsmeistaramót í 50m laug í Laugardalslauginni.
Mótið stendur fram á sunnudag og er sundfélagið með tíu keppendur á mótinu þetta árið.
Krakkarnir hafa æft vel í vetur og verður spennandi að fylgjast með þeim um helgina.
Undanrásir hefjast kl. 09.30 alla dagana og úrslitahlutinn á föstudag hefst 16.30 og á Laugardag og Sunnudag verður hann klukkan 16.00.
RÚV sendir beint frá úrslitahlutanum á laugardaginn og sunnudaginn.
Frekari upplýsingar má finna á :http://www.sundsamband.is/sundithrottir/sundmot/im-50/
þar verður lika linkur fyrir beina útsendingu.
Okkar keppendur:
Brynhildur Traustadóttir og Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir voru lika með lágmörk en Brynhildur er við nám erlendis og Bjartey er ný kominn úr aðgerð.