Íslandsmet og 15. sæti hjá Einari Margeiri á Evrópameistramóti unglinga
Íslandsmet og 15. sæti hjá Einari Margeiri á Evrópameistramóti unglinga
Einar Margeir Ágústsson (17) synti frábærlega á Evrópameistramóti unglinga sem fram fór í Búkarest í Rúmeníu núna um helgina. 494 unglingar frá 42 löndum tóku þátt.
Í 100m bringusundi setti hann Íslandsmet í unglingaflokki þegar hann bætti sinn besta tíma um rúma sekúndu og synti á tímanum 1.03.45, gamla metið átti Árni Már Árnason á tímanum 1.04.07 frá árinu 2005.
Þessi tími skilaði Einari Margeiri 12. besta tímanum í undanrásum og synti hann aftur í 16 manna undanúrslitum og þar synti hann á tímanum 1.03.77 og hafnaði hann í 15. sæti.
Einar er á yngra árinu á EMU, og aðeins 3 á sama aldri á EMU syntu hraðar en Einar.
Einar bætti sig líka í 200m bringusundi um rúma sekúndu og synti á tímanum 2.23.45 og það skilaði honum 34 sæti. Hann hefur bætt sig um 9 sekúndur frá því í janúar í þessari grein.
Í 50m bringusundi synti hann við sinn besta tíma 29.19 og endaði í 23. sæti og aðeins 4 á sama aldri og Einar syntu greinina hraðar.
Topp frammistaða hjá okkar sundmanni sem núna tekur sèr smá hlé áður en æfingar hefjast aftur í ágúst.