Íslandmeistari, tveir unglingameistarar, 15 verlaun og 8 akranesmet á íslandsmeistramóti sem fram fór í Ásvallalaug í Hafnafirði um helginna.

Íslandmeistari, tveir unglingameistarar, 15 verlaun og 8 akranesmet á íslandsmeistramóti sem fram fór í Ásvallalaug í Hafnafirði um helginna.

178 sundmenn frá 15 félögum tóku þátt á Íslandsmeistramóti í 25m laug um helgina, mótið var með nýju sniði í ár þar sem unglingameistarimót fór fram fyrir hádegi og Íslandsmeistramótið seinnipart.

10 sundmenn frá IA tóku ;  Enrique Snær Llorens Sigurðsson, Alex Benjamin Bjarnason, Einar Margeir Ágústsson, Kristján Magnússon, Guðbjarni Sigþórsson, Ingibjörg Svava Magnúsardóttir, Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir, Ásdís Erlingsdóttir, Íris Arna Ingvarsdóttir og Viktoria Emilia Orlita.

Frábær frammistaða hjá okkar fólki, glæsilega bætingar og sundfólkið okkar var mjög áberandi á mótinu.
Í opnum flokki var ÍA fjórða liðið með flest verðlaun og þriðja með flest verðlaun í unglingaflokki hjá strákunum.

Enrique Snær varð Íslandmeistari í 400m fjórsundI á tímanum 4.28.78 eftir mjög vel útfært sund, þar var hann fyrstur allt sundið.
Í 200m fjórsundi vann hann silfur á nýju Akranesmeti á tímanum 2.05.??, hann átti sjálfur gamla metið frá því í fyrra á 2.07.??
Hann vann líka silfur eftir spennandi baráttu um þrjú efstu sætin. 

Guðbjörg Bjartey varð unglingameistari í 50m skriðsundi á 26.51, og í þriðja sæti í sama sundi í fullorðinsflokki.   Hún vann brons í unglingaflokki í 200m skriðsundi og 50m flugsundi.
Hún átti líka mjög kraftmikinn endasprett í 4x100m fjór- boðsundi þar sem hún synti 100m skriðsundi á 56.73, sem var hraðasti 100m spretturinn í boðsundinu.

Einar Margeir varð Unglingameistari í 100m fjórsundi á 58.94.  Hann vann til bronsverðlauna í 50m og 100m bringusundi í fullorðinsflokki og silfur í 50m bringusundi í unglingaflokki.

Kristján vann silfur í unglingaflokki og brons í fullorðinsflokki í 50m skriðsundi á timanum 23.88.

Okkar sundfólk átti góða helgi í boðsundi sem sýnir að við erum með marga góða sundmenn.

Strákarnir unnu silfur í 4x100m skriðsundi, brons í 4x200m skriðsundi og 4x50m fjórsundi,  4 sæti í 4x100m fjórsundi.  Í öllum 4 boðsundunum voru sett Akranesmet.
Sveitirnar skipuðu þeir Guðbjarni, Einar Margeir, Kristján og Enrique.

Í blandaðri sveit unnu þau til bronsverðlauna  í 4x50m skrið og 4. sæti í 4x50m fjórsundi.
Í þessum sundum var einnig sett Akranesmet og sveitina skipuðu þau Einar Margeir, Kristján, Bjartey og Ingibjörg.

Viktoria Emilia tók þátt í sínum fyrsta ÍM og setti persónuleg met í öllum sínum þrem sundum.
Alex Benjamin synti lika af miklum krafti og setti personlegt met í 100m skriðsundi og 50m flugsundi.

Írís Arna átti tvo góða spretti í boðsundi og Ásdís synti líka einn boðsundsprett og stóð sig vel.

Akranesmet um helgina:
Fullorðinsflokkur
Enrique Snær 200m fjórsund á 2.05.??   Eldra metið átti hann sjálfur á tímanum  2.07.84  frá 2021
Guðbjarni   200m skriðsund á 1.56.04    Eldra metið átti Einar Margeir á 1.56.09 frá 2022
4x100m skriðsund á tímanum  3.31.16   Einar Margeir, Guðbjarni, Enrique Snær, Kristján
Gamla metið var 3.32.54 en það áttu þeir Jón Ingi, Ágúst, Birgir Viktor, Jón Þór frá 2011
4x200m skriðsund á 7.54.51  Einar Margeir, Guðbjarni, Enrique Snær, Kristján
Gamla metið var 8.01.07 frá 2011 og það áttu þeir  Jón Ingi, Birgir Viktor, Ágúst, Jón þór

4x50m fjórsund á tímanum 1.46.73   Kristján, Einar Margeir, Enrique Snær, Guðbjarni.
Gamla metið var 1.47.79 og það áttu þeir  Jón Ingi, Ágúst, Birgir Viktor, Jón þór

4x50m fjórsund blönduð sveit synti á 1.54.74,  Kristján, Einar Margeir, Bjartey, Ingibjörg Svava
Gamla metið var 1.56.07 og það áttu þau Enrique Snær, Einar Margeir, Guðbjörg Bjartey og Ragnheiður Karen

4x50m skriðsundi blönduð sveit á tímanum 1.42.82,  Einar Margeir, Kristján, Bjartey, Ingibjörg Svava
Gamla metið var 1.44.08 og það áttu Enrique, Sindri Andreas, Bjartey, Ragnheiður Karen

Unglingaflokkur; Kristján Magnússon 100m baksund á tímanum 59.77  Gamla metið átti Jón Ingi,  59.97 frá 2011