15 verðlaun, 4 Akranesmet, ÍM lágmörk, landsliðslágmark
15 verðlaun, 4 Akranesmet, ÍM lágmörk, landsliðslágmark og fullt af bætingum á Extramóti SH sem fram fór í Ásvallalaug um helgina.
280 sundmenn frá 15 félögum um allt land stungu sér til sunds, Sundfélag Akraness var með 15 keppendur á mótinu.
Sundmótið er eitt af sterkustu mótum sem er haldið er hér á landi á haustin. Sterkustu sundmenn landsins nýta mótið til undirbúnings fyrir íslandsmeistaramótið sem er í lok nóvember.
Krakkarnir stóðu sig mjög vel og alltaf gaman að koma í Ásvallaug til að keppa en sundfólkið okkar er mjög vant þessari laug þar sem við höfum fengið að æfa í lauginni hjá SH á laugardögum og er laugin ein af okkar uppáhalds laugum til æfinga og keppni.
2 gull, 6 silfur og 7 brons komum við með heim á skagann eftir helgina. Það voru þau Einar Margeir Ágústsson, Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir, Enrique Snær Llorens, Guðbjarni Sigþórsson og Kristján Magnússon sem syntu að þessu sinni til verðlauna.
Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir synti undir landsliðslágmarki fyrir næsta tímabil þegar hún synti 100m skriðsund á 58.18 sem skilaði henni 2. sæti í fullorðinsflokki og var það 8. besta sundið á mótinu.
Nokkur Akranesmet voru líka slegin.
Einar Margeir setti Akranesmet í fullorðinsflokki í 200m skriðsundi á tímanum 1.56.06, gamla metið átti Jón Þór Hallgrímsson á 1.56.45 frá árinu 2011.
Einar bætti líka Piltametið í 50m skriðsundi þegar hann synti á 23.76, hann átti metið sjálfur frá því í fyrra (24.69). Gaman að segja frá því að Kristján Magnússon synti líka undir gamla metinu um helgina á tímanum 24.34.
Einar bætti einnig sitt gamla piltamet í 100m skriðsundi þegar hann synti á tímanum 52.68, gamla metið var 53.16 frá því í haust.
Það var mikið um bætingar hjá okkar flotta sundfólki, þeir Alex Benjamín Bjarnason, Víkingur Geirdal, Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir, Einar Margeir Ágústsson, Iris Arna Ingvarsdóttir og Aldís Lilja Viðarsdóttir bættu sig í öllum sínum sundum um helgina.
Viktoria Emilia Orlita náði svo sínu fyrsta IM lágmarki fyrir Íslandsmeistramótið í 50m skriðsundi.
Sannarlega flott helgi hjá skagamönnum.
mynd: Hákon Ágústsson mynd: Hákon Ágústsson mynd: Hákon Ágústsson mynd: Hákon Ágústsson mynd: Hákon Ágústsson mynd: Hákon Ágústsson mynd: Hákon Ágústsson mynd: Hákon Ágústsson mynd: Hákon Ágústsson