Fimmtudaginn 1. desember var haldið Landsbankamót í Bjarnalaug fyrir börn 10 ára og yngri

Fimmtudaginn 1. desember var haldið Landsbankamót í Bjarnalaug fyrir börn 10 ára og yngri. Um 30 krakkar 7 til 10 ára tóku þátt í mótinu og syntu annaðhvort 25m eða 50m skrið og bringusund.

Margir efnilegir sundmenn sýndu að þau hafa náð miklum framförum í vetur og þau höfðu gaman af því að sýna foreldrum og öðrum
áhorfendum árangur sinn.

Ekki síður fannst þeim gaman að fá heimsókn eldri sundmanna en þau Einar Margeir, Enrique Snær, Kristján,  Guðbjarni, Karen, Ingibjörg Svava og Guðbjörg Bjartey stungu sér í laugina og sýndu þeim nokkra spretti og tækni við sundið.