13 sundmenn frá ÍA og Skallagrími á Triton Open í Danmörku
13 sundmenn frá ÍA og Skallagrími tóku þátt í Triton Open í Ballerup í Danmörku um helgina. Um var að ræða krakka á aldrinum 12–15 ára og fyrir flest þeirra var þetta fyrsta keppnisferð erlendis.
Keppt var í 50 metra laug við frábærar aðstæður og skipulag mótsins var til fyrirmyndar. Krakkarnir stóðu sig frábærlega í nýju umhverfi og náðu mörgum góðum bætingum ![]()
Sameiginleg boðsundssveit ÍA/Skallagríms vann til silfurverðlauna í 4x100m fjórsundi ![]()
Sveitina skipuðu: Rúna Björk Ingvarsdóttir (ÍA), Sóley Rós Sæmundsdóttir (Skallagrími), Karen Anna Orlita (ÍA) og Luise Ferun Agathe Knappe (Skallagrími).
Karen Anna Orlita átti glæsilega keppni og vann til gullverðlauna í 200m skriðsundi, silfur í 50m skriðsundi og brons í 200m fjórsundi í flokki 14–15 ára.
Ólöf Oddný Jansen vann einnig brons í 200m bringusundi.
Keppni fór fram laugardag og sunnudag. Á mánudegi hélt hópurinn til Kaupmannahafnar þar sem farið var í skoðunarferð og heimsókn í Tívolí
áður en haldið var heim á þriðjudegi.
Við erum afar stolt af hópnum okkar og þessum frábæra árangri á erlendum vettvangi.
Við viljum einnig þakka kærlega fyrir hlýjar móttökur, einstaka gestrisni og vel skipulagt mót:
Vi takker hjerteligt for den gode modtagelse, gæstfriheden og et velarrangeret stævne ![]()

































