Stærstu Vit-Hit leikarnir frá upphafi voru haldnir síðastliðna helgi á Jaðarsbökkum

Stærstu Vit-Hit leikarnir frá upphafi voru haldnir síðastliðna helgi á Jaðarsbökkum.

Alls tóku 397 sundmenn þátt í mótinu sem stungu sér alls 1.897 sinnum til sunds sem gerir þetta að langstærsta barna- og unglingamóti í sundi sem haldið hefur verið á Íslandi í ár.
Sundfélag Hafnarfjarðar stóð uppi sem sigurvegari í liðakeppninni í ár. Sunddeild Breiðabliks hafnaði í 2. sæti og Sundfélagið Óðinn í 3. sæti. Sunddeild Ármanns fylgdi fast á hæla þeirra í 4. sæti.

Prúðasta lið mótsins var Sunddeild Ármanns. Sundfólk Ármanns sýndi einstaka kurteisi, jákvætt viðmót og mikinn íþróttaanda bæði innan og utan laugar. Slík framkoma er til fyrirmyndar og endurspeglar þau gildi sem Vit-Hit leikarnir standa fyrir.
Veitt voru verðlaun til stigahæsta sundfólksins miðað við samanlagðan árangur í þremur bestu greinunum.

Í aldursflokki 13 ára og yngri vour það Guðlaugur Santiago Guðlaugsson (Breiðabliki) og Áróra Mjögg Jónsdóttir (Ármanni) sem urðu sigurvegarar og í aldursflokki 14–15 ára sigruðu Jón Ingi Einarsson (Óðni) og Guðbjörg Helga Hilmarsdóttir (Breiðabliki)
Nýtt fyrirkomulag var tekið upp í ár þar sem hvíldarsvæði keppenda á milli greina var flutt í nýja íþróttahúsið. Mikill spenningur ríkti fyrir þessari breytingu og var áhugavert að sjá hvernig hún myndi reynast.

Að mati mótshaldara og þátttakenda heppnaðist breytingin afar vel og skapaði enn betri umgjörð um mótið en áður.
Í Grundaskóla var líf og fjör alla helgina en þar gisti sundfólkið og borðaði hollan og góðan mat. Á laugardeginum snæddu yfir 300 manns saman, sem sýnir vel þann góða anda og samheldni sem einkenndi mótið.

Á mótinu ríkti mikil stemning og gleði, auk þess sem góður íþróttaandi var áberandi meðal keppenda. Ljóst er að framtíð sundíþróttarinnar á Íslandi er björt þegar horft er til þess mikla fjölda efnilegra sundmanna sem tóku þátt.
Í yngri hluta mótsins fengu allir þátttakendur þátttökuverðlaun og glaðning frá Vit-Hit, sem vakti mikla ánægju meðal yngstu keppendanna.
Skagasundfólkið hélt áfram að bæta sig og náði sínum besta árangri til þessa í liðakeppni mótsins. Margir sundmenn bættu persónuleg met og sýndu framfarir sem lofa góðu fyrir komandi verkefni.

Að lokum viljum við færa öllum sem komu að mótinu okkar bestu þakkir. Keppendur, þjálfarar, foreldrar, sjálfboðaliðar, dómarar og annað starfsfólk lagði sitt af mörkum til að gera Vit-Hit leikana að þeirri glæsilegu sundhátíð sem þeir urðu.

Sérstakar þakkir fá foreldrar og sjálfboðaliðar sem unnu ómetanlegt starf við undirbúning og framkvæmd mótsins. Án þeirra hefði ekki verið hægt að halda svo stórt og vel heppnað mót.
Við viljum einnig þakka Vit-Hit kærlega fyrir stuðninginn og samstarfið, sem skiptir miklu máli fyrir uppbyggingu og framkvæmd mótsins.

Jafnframt færum við ÍATV bestu þakkir fyrir beina útsendingu frá mótinu, sem gerði fjölskyldum, vinum og sundáhugafólki kleift að fylgjast með og taka þátt í stemningunni, hvar sem þau voru stödd.

Takk fyrir frábæra helgi – við hlökkum til að sjá ykkur öll aftur á næstu Vit-Hit leikunum