Fyrsta degi á ÍM lokið. Brynhildur Traustadóttir vann silfur í 400m skriðsundi
Nú er fyrsta degi á ÍM lokið. Brynhildur Traustadóttir vann silfur í 400m skriðsundi á tímanum 4.22.43 og bætti þar með sitt eigið met frá því í fyrra um sekúndu.
Mjög góður dagur hjá okkur krökkum, í 100m fjórsundi bætti Ragnheiður Karen Ólafsdóttir tímann sinn aftur í kvöld, synti á tímanum 1.09.28 og varð i 5. sæti.. Guðbjörg Bjartey bætti líka tímann sinn og hafnaði i 6. sæti á 1.09.38. Báðar stelpurnar bættu sig yfir 2 sekundur.
Í 400m skriðsundi synti líka Ingibjörg Svava Magnúsardóttir á tímanum 4.50.15, sem er frábær bæting um 4 sekúndur.
Strákarnir voru líka í góðu formi í 400m skriðsundi. Enrique Snær bætti sig um 6 sek, og varð i 6. sæti á timanum 4.13.93 og Sindri Andreas Bjarnason var í 7. sæti á 4.14.42 sem er 5 sek. bæting.
Atli Vikar Ingimundarson varð 6. í 100m flugsundi, aðeins slakari tími í kvöld en í morgunhlutanum en þar synti hann á 59.63. Sindri Andreas synti lika 100m flugsund í morgun á 1.01.66 sem var bæting um 2 sekúndur.
Í 100m bringusundi bætti Enrique sig um 0,3 sek. og fór á 1.12.51. Guðbjörg Bjartey varð i 8. sæti i 200m bringusundi á 2.51.05 aðeins á eftir sínum besta tíma.
Allar þrjár stelpunar sem syntu 50m skriðsund bættu sig , Brynhildur á timanum 27.59. Ragnheiður á 28.23 og Ingibjörg 29.75. Sindri Andreas var i 6. sæti í 50m skriðsundi á tímanum 25.00 bæting um 1,5 sek. Atli Vikar synti á 25.44 aðeins eftir sínum besta tima.
Boðsund :
4x200m konur 5. sæti (Brynhildur, Ingibjörg, Bjartey, Ragnheiður)
4x200m strákar 7. sæti (Enrique Snær, Atli Vikar, Sindri Andreas, Guðbjarni)
4×50 fjórsund blandað 8. sæti (Sindri Andreas, Ragnheiður, Atli Vikar, Brynhildur