Flottir sundkrakkar á Bárumóti.

I gær þriðjudaginn 4. febrúar fór fram árlegt innanfélagsmót, Bárumótið í Bjarnalaug.
Á mótinu eru krakkar á aldrinum 8-12 ára úr sundfélaginu að keppa og á eftir mótið er öllum boðið í pizzuveislu..

Allir keppendur fá verðlaunapening fyrir þátttökuna og stigahæsta stelpan og strákurinn fá farandabikara sem gefnir eru til minningar um Báru Daníelsdóttir.
Mótið gekk mjög vel og sjá mátti miklar framfarir hjá þessum efnilegu sundmönnum en 38 keppendur stungu sér i laugina.

Bárumeistarar 2020 eru þau Adam Agnarsson og Alexandra Ósk Hermóðsdóttir
Við hlökkum til að fylgjast með þessum efnilegu sundkrökkum í framtíðinni.