Skagamenn stóðu sig vel á AMI
Helgina 3.-5. júlí var Aldursflokkameistaramót Íslands í sundi haldið í Hafnarfirði.
Mótið er bæði keppni á milli liða þar sem átta fyrstu sundmenn í hverri grein og hverjum aldursflokki gefa stig og einnig eru stigahæstu sundmenn hvers aldursflokks krýndir.
Sundfélags Akraness mætti til leiks með 18 keppendur og endaði í 6. sæti í liðakeppnin. Okkar sundfólk stóð sig mjög vel, bætti sig mikið og mörgum markmiðum náð.
Á mótinu eru veitt verðlaun fyrir efstu sex sætin.
Eftirtaldir sundmenn SA fengu verðlaun:
Í flokki 15-17 ára:
Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir
Silfur i 100m og 200m bringusund. Brons i 100m skriðsund, og varð lika 5 i 100 flugsund og 6 sæti i 100 og 200m baksund.
Ragnheiður Karen Ólafsdóttir
4. Sæti i 100m bringusund og 5. Sæti i 200m baksund og 6. Sæti i 200m fjórsund.
Ingibjörg Svava Magnúsdóttir
6. Sæti i 800m skriðsund
Í flokki 13-14 ára:
Guðbjarni Sigþórsson
Silfur i 100 skriðsund og 400 fjórsund. Brons i 100 og 200 baksund og 100 flugsund.
4. sæti i 200 skriðsund
Karen Karadóttir
4 sæti i 100m bringusund og 5 sæti i 200m bringusund
Aldís Thea Danielsdóttir Glad
6. sæti i 100m bringusund.
Liðið var með 65 bætingar og allir að standa sig mjög vel, en á mótinu kepptu þau :
Lara Jakobína Ringsted, Ragnheiður Karen Ólafsdóttir, Alex Benjamin Bjarnason, Kristján Magnússon, Einar Margeir Ágústsson, Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir, Ingibjörg Svava Magnúsardóttir, Guðbjarni Sigþórsson, Karen Karadóttir, Aldís Thea Danielsdóttir Glad, Helga Rós Ingimarsdóttir, Bjarni Snær Skarphéðinsson, Ásdís Erlingsdóttir, Víkingur Geirdal, Íris Arna Ingvarsdóttir, Arna Karen Gísladóttir, Aldís Lilja Viðarsdóttir og Viktoria Emilia Orlita.
Alls tóku 20 sundlið þátt í mótinu og voru keppendur 285.
Lið SH í Hafnarfirði bar sigur, en í 2. sæti var lið ÍRB frá Reykjanesbæ, í 3. sæti var lið Sunddeildar Breiðabliks úr Kópavogi, í 4. sæti var lið ÍBR sem eru sameinuð þrjú sundlið úr Reykjavík og í 5. sæti var lið Sunddeildar Ægis frá Reykjavík.
Mótið fór vel fram, og var gleðin við völd þar sem sundmenn stóðu þétt saman og voru duglegir að hvetja hvort annað. Sundfélag Akraness þakkar fararstjórum, dómarar og foreldrum kærlega fyrir þeirra ómetanlega framlag.
Sundfélagið vill færa Verslun Einars Ólafssonar kærar þakkir fyrir stuðninginn en verslunin sá keppendum fyrir bakkamat.
Myndir: Sundsamband Islands / ÍA