Fyrsta degi á ÍM lokið. Frábær árangur, þrjú bronsverðlaun og þrjú Akranesmet

Enrique Snær Llorens Sigurðsson vann brons í 400m skriðsundi á timanum 4.03.08 sem var þremur sekúndum hraðar en hann synti í undanrásum í dag. Gamla metið átti mótstjóri IM, Leifur Guðni Grétarson á tímanum 4.10.68 frá árinu 2008.

Einar Margeir Ágústsson vann brons í 100m bringusundi á tímanum 1.06.50 sem var aðeins hægar en í morgun en þar synti hann á 1.05.32.

I 4x200m skriðsundi unnu strákarnir okkar, Sindri Andreas Bjarnasson, Enrique Snær, Einar Margeir og Guðbjarni Sigþórsson bronsverlaun.

Kristjan Magnússon setti svo Akranesmet í piltaflokki í 50m skriðsundi í fyrsta hlutanum í dag á tímanum 24.76 sem var bæting frá mánaðar gömlu meti sem Einar Margeir átti á tímanum 25.00.

Þriðja Akranesmetið í dag átti 4x50m blönduð boðsundsveit karla og kvenna í fjórsundi en hana skipuðu þau Enrique Snær, Einar Margeir, Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir og Ragnheiður Karen Ólafsdóttir. Sveitin hafnaði í 4 sæti.
Sveit 2 varð í 8 sæti og þar syntu : Kristján, Karen Karadóttir, Sindri Andreas og Ingibjörg Svava MagnúsardóttirÚrslitahlitinn í kvöld gekk mjög vel hjá okkar krökkum.

Ragnheiður Karen Ólafsdóttir varð í 4. sæti í 100m fjórsundi á 1.09.71, aðeins 0.05 frá bronsverlaunum.Hún bætti sig vel í 200m bringusundi og hafnaði í 6. sæti.

Guðbjörg Bjartey varð 4. Í 50m skriðsundi á 27.09 sem er góð bæting hjá henni.

Einar Margeir varð í 4. sæti í 100m fjórsundi á 1.01.03 og Sindri Andreas nr. 5 á 1.01.38.

Í úrslitasundi í 50m skriðsundi karla var IA með þrjá sundmenn, Sindri Andreas varð nr 5, Kristjan Magnússon nr 7 og Enrique Snær nr 8. Í 200m baksundi hafnaði Kristján í 6. sæti og Guðbjarni í 8.

Sannarlega flottur dagur og fínar bætingar hjá öllum okkar 9 sundmönnum.Við hlökkum til morgundagsins en undanrásir hefjast kl. 09.30 í fyrramálið.