Vel heppnað Bárumót
Í gær, fimmtudaginn 31. mars fór fram árlegt innanfélagsmót Sundfélags Akraness, Bárumótið, í Bjarnalaug.
Á mótinu taka krakkar á aldrinum 8-12 ára þátt. það var gaman að bjóða áhorfendum að koma aftur til að horfa eftir tveggja ára hlé sem skapaði frábæra stemningu á laugarbakkanum.
Mótið gekk mjög vel og sjá mátti miklar framfarir hjá þessum efnilegu sundmönnum en 37 keppendur stungu sér í laugina.
Allir keppendur fengu verðlaunapening fyrir þátttökuna og stigahæsta stelpan og strákurinn fengu farandbikara sem gefnir eru til minningar um Báru Daníelsdóttur.
Bárumeistarar 2022 eru þau Kajus Jatautas og Karen Anna Orlita
Við hlökkum til að fylgjast með þessum efnilegu sundkrökkum í framtíðinni.