Landsbankamót IRB fór fram í Keflavik um helgina og 26 sundmenn frá Sundfélagi Akraness tóku þátt

Landsbankamót IRB fór fram í Keflavik um helgina og 26 sundmenn frá Sundfélagi Akraness á aldrinum 8-15 ára tóku þátt í fjölmennu móti með 429 sundmenn.

Á föstudaginn voru það 8 ára sundmenn sem stungu sér til sunds í fyrsta skipti á sundmóti í 25m laug.Þau stóðu sig mjög vel og syntu mjög flott sund. Greinilega búin að æfa tæknina vel í vetur. Á laugardaginn kepptu yngri í 25m laug, meðan eldri kepptu í 50m laug. Hér voru góðar framfarir og nokkrir syntu sig til verlauna. En ánægjulegast var að sjá að þau voru búin að ná flestum af tækniatriðunum sem þau eru búin að æfa upp á síðkastið.

Krakkarnir bættu sig í 72 af 85 sundum, sem er frábær árangur.4 gull, 1 silfur og 3 brons kom heim á skagann ásamt öllum þessum bætingum.
Við þökkum ÍRB fyrir frábært mót og líka takk Einarsbúð sem sá um bakkamat fyrir okkar sundfólk.Ekki er heldur hægt að fara á gistimót án þess að hafa góðan hóp foreldra til að fara með okkur og aðstoða og við þökkum fyrir það.