Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir og Kristján Magnússon kepptu með unglingalandsliði Íslands.
Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir og Kristján Magnússon kepptu með unglingalandsliði Íslands á Taastrup Open í Danmörku núna um helgina.
Bæði unnu þau til bronsverlauna í 50m skriðsundi á mótinu og í 50m bringusundi hafnaði Kristján í þriðja sæti og fékk bronsverðlaun.Þau voru einnig partur af blandaðri boðsundsveit sem vann til bronsverlauna í 4x100m skriðsundi. Guðbjörg Bjartey synti fyrsta sprett og Kristján tók loka sprettinn.
Í sveitinni voru einnig þau Björn Yngvi Guðmundson frá SH og Sunna Arnfinnsdóttir frá Ægir sem er frænka Guðbjargar Bjarteyjar.
Guðbjörg Bjartey varð í 4. sæti í 100m skriðsundi og aðeins 0,03 sek. frá bronsi. Hún hafnaði í 9. sæti í 50m baksundi.
Kristján varð í 4. sæti í 100m skriðsundi.Íslenska landsliðið varð stigahæsta liðið á mótinu og tóku með sér bikar heim.