Glæsileg byrjun á tímabilinu með 41 bætingu, 3 Akranesmet og landsliðslágmörk.
Laugardaginn 24. september tóku 19 sundmenn frá ÍA þátt í Turbomóti Ármanns sem var mjög fjölmennt mót með yfir 320 keppendur.
Byrjunin á tímabilinu var mjög góð, 41 bæting, 3 Akranesmet og landsliðslágmörk.
Alltaf gaman að byrja tímabilið með framförum og við hlökkum virkilega til vetursins.
Einar Margeir setti 3 Akranesmet ;
100m skriðsund á 51.53, gamla metið átti Ágúst Júlíusson frá 2011 á 52.15.
200m skriðsund á 1.54.63, gamla metið átti Guðbjarni Sigþórsson frá því í fyrra á 1.56.04
100m fjórsund á 57.55, gamla metið átti hann sjálfur á tímanum 58.80 frá því í fyrra.
Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir synti undir landsliðslágmarkinu í 100m skriðsundi á 57.48
Næst hjá okkar krökkum er Arena Mót Ægis 7-8 október.