Bárumót 2024

I gær, fimmtudaginn 21. mars fór fram árlegt innanfélagsmót Sundfélags Akraness, Bárumótið, í Bjarnalaug.

Á mótinu taka krakkar á aldrinum 8-12 ára þátt.

Mótið gekk mjög vel og sjá mátti miklar framfarir hjá þessum efnilegu sundmönnum en 30 keppendur stungu sér í laugina.

Allir keppendur fengu verðlaunapening fyrir þátttökuna og stigahæsta stelpan og strákurinn fengu farandbikara sem gefnir eru til minningar um Báru Daníelsdóttur.

Bárumeistarar 2024 eru þau Mangirdas Moliusis og Karen Anna Orlita.